sunnudagur, 20. júní 2010

Tröllið súra


Rha barbaron á grísku útleggst sem rabbabari á íslenskri tungu (rabbarbari? rababari?) og vex víða, m.a. á Kelduhvammi. Þar sprettur hann alveg villt og galið en heimilisfólkið þar er löngu hætt að sulta og búa til rabbabarasúpu og -grauta. Við fengum því að skera okkur stilka og voila, eftir kvöldmatinn bar Grétar fram dýrindis rabbarbara og eplapæ með ís. Sérlega gott og ákaflega heilnæmt.

1 athugasemdir:

  1. Tröllasúra hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér og hef ég viðað að mér uppskriftum af alls kyns pæjum í gegnum árin. Mmmmm... með rjóma eða ís.
    Kv. álfa

    ReplyEyða