 |
| Hugmynd að árshátíðarkjól? |
Loksins gafst tími til að horfa á nokkra Mad men þætti en ég keypti mér fyrstu seríuna um daginn. Ég var búin að heyra frá áreiðanlegum heimildum (frá sjónvarpskrítíkerinum í París nánar tiltekið) að þetta væri gott stöff. Og svei mér ef það er ekki rétt - þetta er vel leikið og skrifað og svo er þessi tími og tíðarandi svo áhugaverður, ameríski draumurinn 1950+ og ýmsar vafasamari hliðar hans. Fólk reykir stanslaust og er síhvolfandi í sig drykkjum, meiraðsegja í barnaafmælum, svo maður verður hálf-slompaður af því að horfa á þetta en það er auðvitað bara bónus.
Rosa flottir þættir og flottar konur í flottum kjólum. Þetta er Dalalíf þeirra Kananna.
ReplyEyðaGott að hafa í huga að fólk sem þú þekkir hefur mætt Don Draper á skokki á förnum vegi.
ReplyEyðaÞetta er með besta sjónvarpsefni sem ég hef séð (plús the Wire en það er dálítið kitsj að tala um það eftir kosningarnar í vor).
sérðekki að við erum að bíða eftir myndum frá helginni???
ReplyEyðaEkki tókum við margar myndir, það var svo kalt að maður fór ekki úr vettlingunum ótilneyddur.
ReplyEyða