laugardagur, 17. desember 2011

Hin árlega jólasúpa

Það er orðin föst hefð hér á Njálsgötunni að bjóða fjölskyldu og vinum uppá súpu stuttu fyrir jól.  Þetta hefur tvíþættan tilgang; annars vegar (og það sem mestu skiptir náttúrlega) er að sjá framan í fólkið því það eru jú allir á sífelldum þönum á þessum tíma.  Hins vegar að hvetja til þess að fólk geri sér ferð í miðborgina og upplifi jólastemminguna þar sem hjarta borgarinnar slær.  Það er því tilvalið í rölta í bæinn og koma við á Njálsgötunni og fá staðgóða og (vonandi) bragðgóða súpu. 
Á morgun (sunnudag) rennur jólasúpudagurinn upp.  Uppúr kl. 15:00 ætti súpan að vera tilbúinn og verður í boði fram eftir degi, jafnvel fram á kvöld.  Fólk getur því bara litið við þegar því hentar.  Vonumst til að sjá sem flesta. 

2 athugasemdir:

  1. Þetta tókst vel; súpan var heit og góð og ekki leiðinlegt að hitta Júlíus og frú. Súrt að fá ekki meira Púrtvín. Úrt því sem komið var.
    "Ohanegjúðr!"

    ReplyEyða
  2. Ég læt mig ekki vanta aftur í árlegt jólageim!

    ReplyEyða