sunnudagur, 11. desember 2011

Kakó í fjósi

Ekta heitt súkkulaði í boðinu

Bíllinn bilaði fyrir helgi, nýkominn af verkstæði (!) svo við misstum af Ós-jólatrésferðinni í gær. Við bættum það þó upp í dag, fengum jeppann hennar Elsu, mömmu Grétars, lánaðan og vorum því rétt búin fyrir fannfergið í  Hafnarfirði, hvert við héldum. Hjá Skógrækt Hafnarfjarðar  er hægt að kaupa fallegar furur sem koma reyndar austur af Héraði – sem er dálítið furðulegt en þó viðeigandi, fyrir okkur að minnsta kosti, Hafnfirðinginn og Héraðsbúann.
Við keyptum okkur passlega stórt tré og fengum svo kakó og smákökur inn í "fjósi", gömlum bjálkakofa sem einu sinni var notaður sem skólastofa fyrir unglinga í Öldó. Meðal annars má sjá þar fornt veggjakrot (það var ekki ég sem skrifaði þetta, örugglega Ellý og pönkararnir...), þar sem segir einfaldlega: "Egó æði".

3 athugasemdir:

  1. Gott að þið komust að kaupa jólatréið, gátuð frætt stúlkurnar um pönktímabilið í sögu hafnarfjarðar svona í leiðinni. Og heyrðu, er ekki örugglega eitthvað eftir af you know what.
    Erfitt að vita af þeim í 12 km fjarlægð.

    ReplyEyða
  2. Hafa nemendur virkilega skorið þetta út í tré? (eða var þetta túss?)

    ReplyEyða
  3. Gæti verið trérista með tússi.

    ReplyEyða