| Nýir kjólar og ný skegg! |
mánudagur, 26. desember 2011
Jólajólajól
laugardagur, 17. desember 2011
Hin árlega jólasúpa
Það er orðin föst hefð hér á Njálsgötunni að bjóða fjölskyldu og vinum uppá súpu stuttu fyrir jól. Þetta hefur tvíþættan tilgang; annars vegar (og það sem mestu skiptir náttúrlega) er að sjá framan í fólkið því það eru jú allir á sífelldum þönum á þessum tíma. Hins vegar að hvetja til þess að fólk geri sér ferð í miðborgina og upplifi jólastemminguna þar sem hjarta borgarinnar slær. Það er því tilvalið í rölta í bæinn og koma við á Njálsgötunni og fá staðgóða og (vonandi) bragðgóða súpu.
Á morgun (sunnudag) rennur jólasúpudagurinn upp. Uppúr kl. 15:00 ætti súpan að vera tilbúinn og verður í boði fram eftir degi, jafnvel fram á kvöld. Fólk getur því bara litið við þegar því hentar. Vonumst til að sjá sem flesta.
Á morgun (sunnudag) rennur jólasúpudagurinn upp. Uppúr kl. 15:00 ætti súpan að vera tilbúinn og verður í boði fram eftir degi, jafnvel fram á kvöld. Fólk getur því bara litið við þegar því hentar. Vonumst til að sjá sem flesta.
sunnudagur, 11. desember 2011
Kakó í fjósi
| Ekta heitt súkkulaði í boðinu |
Bíllinn bilaði fyrir helgi, nýkominn af verkstæði (!) svo við misstum af Ós-jólatrésferðinni í gær. Við bættum það þó upp í dag, fengum jeppann hennar Elsu, mömmu Grétars, lánaðan og vorum því rétt búin fyrir fannfergið í Hafnarfirði, hvert við héldum. Hjá Skógrækt Hafnarfjarðar er hægt að kaupa fallegar furur sem koma reyndar austur af Héraði – sem er dálítið furðulegt en þó viðeigandi, fyrir okkur að minnsta kosti, Hafnfirðinginn og Héraðsbúann.
Við keyptum okkur passlega stórt tré og fengum svo kakó og smákökur inn í "fjósi", gömlum bjálkakofa sem einu sinni var notaður sem skólastofa fyrir unglinga í Öldó. Meðal annars má sjá þar fornt veggjakrot (það var ekki ég sem skrifaði þetta, örugglega Ellý og pönkararnir...), þar sem segir einfaldlega: "Egó æði".
laugardagur, 10. desember 2011
fimmtudagur, 8. desember 2011
Af jólatrjám og bakstri
![]() |
| Rétta jólatréð er vandfundið |
sunnudagur, 4. desember 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)


