 |
| Þórarinn og Örlygur komust ekki á listann. |
Hin árlega janúarfreisting er bókaútsölurnar. Þó að ég hafi tekið ástfóstri við kyndilinn minn og muni sjálfsagt ekki kaupa skáldsögu á pappír meir, eru listaverka- og innanhúss"dekkó"bækurnar eitthvað sem maður setur ekki í svarthvítt lesbretti. Ég náði mér í þessa fínu uppflettibók, tæplega 400 listamenn listaðir, allt frá fægistíl og hlaðstíl til gnæfu og klumbustíls. Nú verð ég viðræðuhæf við listfræðinga.
Ég tala nú ekki um hvað svona bækur eru lekkerar á borði eða í hillu. Ég var alveg búin að gleyma þessum yndislegu þýðingum úr Fjölva bókunum í denn,gnæfu- og fægistíll hvað er nú það?
ReplyEyðaEinhvern tímann settu myndlistarnemar upp Gallerí gnæfu. Mig minnir að gnæfa hafi verið klassík og fægistíll mannerismi. Brilljant! (þ.e. snilldarlegt).
ReplyEyða