sunnudagur, 1. janúar 2012

Nýtt ár

Algert tímamótaverk. Ég meinaða.

Nýtt ár hafið og vonandi kveðjum við fljótlega pestina sem á okkur hefur herjað að undanförnu (ég er ekki að tala um forsetann heldur flensuna hér á heimilinu). Ég sló líka striki undir mína fínu meistararitgerð sem ég á að skila fyrir 6. janúar og er þar með laus við allt skólastúss  að eilífu. Það verður alveg nóg að fara yfir heimalærdóminn með Hildigunni og Matthildi næstu árin. Bless gamla ár, velkomið nýtt ár með fullt af fríum kvöldum.

4 athugasemdir:

  1. M.A.-M.A. - stundin langþráða loksins runnin upp! Betra en ABBA svei mér þá

    ReplyEyða
  2. ...fer nú alveg eftir því hvernig maður túlkar "tímamótaverk".

    ReplyEyða
  3. Enga leti, hvenær kemur plötuumslag mánaðarins?

    ReplyEyða