fimmtudagur, 19. janúar 2012

Sushi Quatro

Árangurinn var glæsilegur.
Ég fékk í jólagjöf margt fallegt og fínt en eina gjöfina leysti ég út nú í fyrradag. Grétar bauð mér á sushi-námskeið sem var haldið eina kvöldstund lengst upp í Árbæ. Halli veitti pössunarþjónustu á meðan ("hann var alltaf að grínast", sögðu stúlkurnar kátar daginn eftir). Á námskeiðinu voru sirka tuttugu manns, allir fengu hníf í hendur, grænmeti og fisk til að skera, grjón og allt tilheyrandi og við lærðum að gera tvær tegundir af rúllum og fengum meira að segja smá tilsögn í að halda á prjónum. Sushimeistarinn kunni sitt fag og lumaði á ýmsum góðum ráðum en var hins vegar ekki mjög vel máli farinn ("ef maður sé með sushi-veislu"). Það dró líka úr færni minni með hnífinn hversu kalt var í salnum.  En þetta var mjög skemmtilegt og fróðlegt og það sem óx manni í augum er nú leikur einn!

3 athugasemdir:

  1. Hrikalegt flott og girnilegt.

    ReplyEyða
  2. Nú veit ég hvert ég fer í mat næst þegar ég kem til landsins, ótrúlega girnilegt og fallega raðað (nema hvað)

    ReplyEyða
  3. Eh, þetta var nú allt í plati og mynd tekin af netinu. Rúllurnar okkar voru ójafnar, klístraðar og misstórar - en bragðgóðar mjög, lýg því ekki.

    ReplyEyða